Ung, gröð og rík

Eru ekki allir í stuði?

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Er þetta hægt?

Nú er ég prófa að senda blogg á blogspot af ogvodafone blogginu, skyldi þetta virka?
Bloggfærslu sendi ég

|

miðvikudagur, október 06, 2004

Hin blekkjandi kunta...

|

þriðjudagur, október 05, 2004

Ég er svalari en Bubbi og gerði smá prakkarastrik

|

fimmtudagur, september 30, 2004

Ég bloggaði!

|

miðvikudagur, júlí 21, 2004

ble

|

þriðjudagur, júní 29, 2004

Ég veit sko alveg hvernig á að túlka þessar kosninganiðurstöður!

Ég mætti sérstaklega á kjörstað og skilaði auðu. Ég er ekkert sérstaklega á móti Óla forseta og af þeim sem í boði voru var hann líklega skásti kosturinn. Auk þess var frekar fyrirséð hver úrslit kosninganna yrðu.
Ég hinsvegar vildi senda forseta vorum skilaboð. Skilaboð um það að ég sé ekki allskostar sátt við það hvernig hann vinnur vinnuna sína. Skilaboð um það að með því að bjóða sig fram þetta árið er hann í raun að brjóta kosningaloforð sem hann gaf þegar hann bauð sig fram fyrst.
Það að ég skilaði auðu þýðir ekki að ég sé á bandi sjálfstæðisflokksins eða láti Moggann hafa áhrif á mig. Enda les ég ekki Moggann og hlusta ekki á sjálfstæðisflokkinn.
Ég er bara ein manneskja og ég hef skoðanir. Þær eru ekkert svart á hvítu með eða á móti einhverju einu stjórnmálaafli (þó sjálfstæðisflokkurinn sé í mjög litlu uppáhaldi) heldur kýs ég eins og samviska mín býður mér.
Í þetta skiptið kaus ég að nota kosningarétt minn til að koma skilaboðum á framfæri. Skilaboðin eru þessi "ég veit þú vinnur Óli minn en þú verður að fara að vinna vinnuna þína aðeins betur".

|

fimmtudagur, júní 17, 2004

Lesendur með athyglisgáfurnar í lagi hafa kannski tekið eftir því að hér hefur ekki mikið verið sagt í háa herrans.
Því miður er þetta innlegg ekki skrifað til að boða breytingar þar á. Ég er í mikilli andlegri og líkamlegri blogglægð og nenni ekki að skrifa neitt.
Það verður sum sé lítið bloggað næstu vikurnar og fyrir þá sem nenna ekki að svekkja sig á því að koma hérna inn án þess að sjá nýjar færslur þá ætla ég að tímasetja kombakkið mitt svona cirka 20. ágúst.
En það er auðvitað aldrei öruggt. Ég er meira að segja komin með vinnu hérna fyrir norðan. Draumadjobbið meira að segja. Verð að vinna í dýrabúð!!! Gæti það verið betra?? Ef það er nettenging þar þá er aldrei að vita nema bloggið taki einhverja kippi hjá mér.
En þangað til..
góðar stundir.

|
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com